Hæ hæ,,,,,,,,,,,,

Alveg frábær dagur, fékk svona flassbakk þegar við Íris mín fórum með litlu frænkur mínar Söru og Evu í stærstu leikfangaverslun landsinsSmile 

Þær áttu að sína okkur hvað þeim langar í í jólagjöf, við vorum að spæja fyrir pabba þeirra, og auðvitað langaði þeim í nánast alltGrin Enda náði ég í blað og penna og Íris skráði það niður.

Svo fórum við í IKEA svo þær gætu farið í boltalandWizard Fórum svo með þær heim og þegar þær voru búnar í baði greiddi Íris þeim voða fínt og setti fastar fléttur. Trausti pantaði svo pizzur á línuna.

 Þegar þessi dagur var búin fór ég heim og borðaði minn góða vigtaða mat, með mínum manniInLove

Sem sagt alsæl með þennan dag.

Þangað til næst, bæjó


Jólin jólin,,,,,,,,,,,,,

Jæja þá er farið að spila jólalögin á Léttbylgjunni :o) Og við Íris ætlum í jólagjafaleiðangur á morgun. Sara og Eva fara með okkur en það eru litlu frænkur mínar sem bróðir minn á.

Svo þarf maður að fara að baka nokkrar sortir. Veit svo sem ekki fyrir hvern ég ætti að vera að baka, það borðar þetta engin hér. Kannski ég gefi mömmu smákökur, verð svona góð dóttir :o)

Ég er bara ekkert komin í neitt jólastuð, það kemur kannski á morgun ef það er búið að skreyta í búðunum og svona.
Fer kannski bara að setja upp seríur í gluggana hjá mér.

Þangað til næst, JÓLA HVAÐ bæjó


Góður dagur,,,,,,,,,

Já þessi dagur er búin að vera mjög fínn, frekar rólegt í vinnunni "bara" sex börn mættu. Það er svo notalegt að vera að vinna heima og það með elskunni sinni. Við gátum bara spjallað og haft það huggulegt.

Svo hitti ég vinkonu mína á skypinu, hún býr í Danmörku. Það er alltaf svo yndislegt að tala við hana, hún er svo góð og hlý manneskja. Við þekktumst í gamla daga, en týndumst svo og erum nýbúnar að endurnýja kynnin. Mér finnst ég svo heppin að hafa fundið hana aftur. Þökk sé blogginu :o)

Er að fara í smá aðgerð í fyrramálið, finn fyrir smá kvíða. Verð bara að leggja þetta í hendurnar á mínum æðri mætti.

Er sem sagt hamingjusöm, glöð og frjáls.
Þangað til næst, bæjó.


Hæ hæ,,,,,,,,,

Maður þorir varla að segja að manni líði vel. Það er einhvern vegin þannig að allir eiga að vera á bömmer yfir ástandinu.
Mér hefur ekki liðið svona vel eins og mér líður núna í langan tíma.
Mér finnst ég svo örugg eftir að ég fór að treysta mínum æðri mætti fyrir lífinu mínu. Ég veit að ég þarf að skoða í hvað ég eyði peningunum mínum, en það er bara ekki málið. Ég er svo innilega æðrulaus og þakklát fyrir allt sem ég á, t.d á ég yndislegan mann, yndisleg börn, yndislegar kisur, yndislegt heimili og svo á ég yndislega fjölskyldu og vini. Takk fyrir mig góði Guð. Þangað til næst, bæjó

Jólahreingerning eða hvað,,,,,,,,,,,,,,,

Ég ætlaði nú ekkert að gera neina sérstaka jólahreingerningu, en fannst ég endilega þurfa að þrífa eldhúsinnréttinguna. Svo verður maður búin að taka alla fataskápa áður en maður veit af.

Veit ekki alveg afhverju ég er að þessu á þessum árstíma, því ég er ekki einu sinni heima um jólin :o) En maður er bara einn vani.
Annars er allt gott að frétta af mér og mínum.

Ég hef verið svo róleg undanfarið, ég er ekki lengur svona mikið fiðrildi út og suður alla daga eins og ég var. Er orðin svo heimakær, sem er mjög gott. Það segir mér bara hvar ég er stödd í minni vinnu með sjálfa mig.

Ætla að koma mér í svefn núna. Góða nótt.


Hæ hæ,,,,,,,,,

Þá er maður komin með glimrandi flottar neglur :o) Var sem sagt hjá HD áðan.
Við vorum báðar eitthvað svo þreyttar, en náttúrulega þamba ég bara kaffi svo ég vakni. En ég er að hugsa um að vera ábyrg núna og koma mér snemma í bólið. Þangað til næst, bæjó

Geðveikt stuð!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Já það var sko alveg geðveikt stuð á Janis Joplin showinu. Bróðir minn gaf okkur Írisi minni miða, annars hefði ég örugglega ekki farið.
Annars er bara allt gott að frétta af mér og mínum :o) Er farin að hlakka til að fara í sumarbústaðinn um jólin. Mamma vinkonu minnar ætlar að lána mér bústaðinn sinn, ekkert smá nice.
Var í allan eftirmiðdaginn með Írisi heima hjá bróðir mínum að þrífa. Hann er alveg í klessu, enda nýskilinn blessaður kallinn.
Er að hugsa um að eiga kósý dag á morgunn með mínum ektamanni.
Þangað til næst, góða nótt og bæjó.

Sæluhelgi,,,,,,,,,,,,,,,

Bara sæla framundan. Það er ekki hægt annað en að láta sér hlakka til að eyða heilli helgi í svona frábærum félagskap. >Góða nótt

Að drepast í bakinu,,,,,,

Ég er ekki vön að finna til í bakinu, en ég er alveg að drepast núna :o(
Held að ég hætti að gera þessar leikfimisæfingar á morgnana, alla vega hér heima. Þarf að hunska mér í ræktina og gera þetta með leiðbeinanda. Alla vega ég er sem sagt ekkert rosa kát núna. Get hvorki setið né legið nema stutta stund í einu. Sem sagt hundfúlt. Þangað til næst. Bæjó

Veisla,,,,,,og önnur veisla,,,,

Jæja þá er formlega búið að skíra dótturina Kristborgardóttir og var skírnarveislan haldin í dag :o)
Við Díana vinkona ákváðum að halda veislu fyrir hana litlu stelpuna.
Ég er svo montin af því að hún skuli vilja vera skrifuð Kristborgardóttir.
Ekki að ég sé að fara fram á að hin geri það líka,,, eða jú,,,,
Nei djók. Annars er ég bara sátt við guð og menn. Er samt ekki að skilja hvað helgin er búin að vera fljót að líða.
Mamma gamla er 75 ára á morgunn, ég ætla að baka handa henni köku og fara með til hennar. Hún vill ekkert halda upp á þetta.
Við systkynin hittumst bara hjá henni seinni partinn og sláum upp smá húllumhæi.
Þá er bara að koma sér í rúmið so maður verði hress í fyrramálið.
Þangað til næst, góða nótt og bæjó.

Vetur Konungur,,,,,,,

Jæja þá er veturinn sem sagt kominn, eða hvað? Ég sit hérna í Lazy boyinum mínum og bíð eftir vonda veðrinu sem á að koma.
Hún Íris mín tók sig nú til og labbaði til okkar í kvöld, sem er nokkuð gott því þetta er frekar langt,svo dobblaði hún stjúpa sinn til að skutla sér heim:o)
Annars fer alltaf um mig þegar það á að koma "vont" veður Ég er nefnilega svo veðurhrædd. Lenti einu sinni í brjáluðu veðri á Breiðamerkusandi, það var svo mikið rok að það brotnuðu báðar hliðarrúðurnar úr, ég var með Esther mína 5 mánaða gamla aftur í, mágkona mín var líka með og var hún komin 8 mánuði á leið. Kletturinn minn í ferðinni var Kalli bróðir.
En vegir Guðs eru ótrúlegir við komumst inn í skýli sem hjálparsveitin átti, biðum þar eftir hjálp.
Veðrið verður gengið niður ( ef það kemur) þegar ég vakna.
Þangað til næst, bæjó

Söngvaseiður...........

Vá hvað mig hlakkar til að sjá þessa sýningu, er svo oft búin að sjá myndina.
mbl.is 4000 börn vilja á Stóra sviðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blablablabla....................................

Við íslendingar erum svo góð að tala og tala,,,,,,,,,,,, hvernig væri nú að fleiri myndu mæta og mótmæla á Austurvelli næsta laugardag???? Við hjónin vorum að ræða þessi mál og ákváðum að reyna bara að vera bjartsýn og sökkva okkur alls ekki í eitthvert svartnætti sem er kannski svo auðvelt að gera á svona tímum. Ég tel mig vera algjöran lukkunnar panfíl, ég hef minn æðri mátt sem ég treyst alveg 100%.
Svo get ég kannski prísað mig sæla fyrir að eiga engin bréf eða neitt svoleiðis til þess að tapa. Það þýðir samt ekki að ég finni ekki til með fólki sem hefur tapað sínu sparifé. Verum góð við hvert annað, það er alltaf hægt að brosa og gefa knús.
Kærleiksknús til allra :o)

15 ára. Dagarnir líða,,,,,,,,,,,,

Og árin líka. Ég er búin að vera frá áfengi í 15 ár á morgun heyr heyr.
Ég er mjög stolt af mér og má alveg vera það. Þetta var ein af þessum góðu
ákvörðunum sem ég tók, ég leitaði mér hjálpar og fékk lausn.
Ég er orðin pínu þreytt á öllum þessum neikvæðu fréttum, nenni ekki að hlusta á útvarp og hlusta með öðru eyranu þegar karlinn er að horfa á fréttir.
Ætla að eiga góðan fréttalausan dag á morgun.
Þangað til næst.
Bæjó

Kreppa??????????????

Er ekki bara komið að skuldardögum? Við erum nú búin að vera ansi eyðsluglöð.
Ég er allavega alveg beljuróleg yfir þessu, vonandi er ég ekki bara svona vitlaus af því að ég skil ekkert í þessu öllu.
Það eina sem ég get gert er að halda áfram að treysta Guði fyrir mér og mínum. Ég er fyrir löngu búin að taka þá ákvörðun að treysta mætti mér æðri fyrir mínu lífi.
Svo verð ég náttúrulega að hætta að kaupa mér stígvél híhí
Eigið góða nótt.

Hangs,,,,,,,,,,

Skil ekki þessa óreiðu sem er komin á svefninn minn. Ég virðist alltaf geta gleymt mér í tölvunni eða eitthvað. Eins og til dæmis núna ætti ég að vera sofnuð, en er hér að blogga.
En þetta er í lagi, ég er að fara í stelpuferð um helgina og þá sef ég bara.
Og hangi í heita pottinum og svoleiðis dekur. En þangað til næst, bæjó

Blogg leti,,,,,,,,,,,,,,

Er búin að vera löt að blogga.
Átti mjög góða helgi, sótti mömmu á laugardaginn og fórum við á Selfoss að skoða nýju íbúðina hjá Esther og Boggu.
Aldeilis munur hjá þessum elskum að vera komnar í stærra húsnæði.
Maður þarf ekki að fara út til að skipta um skoðun eins og í hinni íbúðinni :o)
Síðan tókum við á okkur krók og keyrðum út á Eyrabakka og fórum svo Þrengslin í bæinn. Mamma var svo ánægð með daginn. Hún lifir á þessu næstu vikurnar þessi elska.
Nú á sunnudaginn fór ég á fund eftir hádegi, náði svo í karlinn og við heimsóttum mág minn og svillkonu. Ákvað að ég yrði að ná karlinum aðeins út svo hann myglaði ekki hérna heima.
Ég sem sagt var búin að ákveða fyrir hann að hann yrði að komast út, þar sem við værum að vinna heima. Hann kom auðvitað með mér en sagði mér það pent að sér liði mjög vel heima hjá sér :o)
Það er sem sagt ég sem er algjört þeytispjald og skil það eðlilega ekki hvernig er hægt að hanga heima hjá sér í heila viku.
Jæja núna verð ég víst að fara að sofa. Þangað til næst, góða nótt og bæjó.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kristborg Ingibergsdóttir

Höfundur

Kristborg Ingibergsdóttir
Kristborg Ingibergsdóttir
Skemmtilegasta dagmamman í bænum

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Brúðkaup 070
  • DSC04961
  • Skvísurnar mínar
  • Íris Ósk

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 335

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband