Hvíl í friði

Hann tengdafaðir minn fékk hvíldina í gærkvöldi. Það var erfið stund að vera viðstödd þegar slökkt var á tækjunum. Átta af tíu börnunum hans voru viðstödd,tengdamamma og ég.

Það var svo lítil kveðjustund inn á annari stofu, þegar búið var að laga hann til. Djákninn las bæn og við fórum með bæn, falleg stund. Síðan kvöddum við hann.

Það er nú bara svoleiðis að þó fólk sé orðið fullorðið þá er mikil sorg sem maður fer í gegn um þegar ástvinur deyr. Hann Friðrik minn er nú ekki mikið að flagga tilfinningunum, en hann talar um sorgina, sem betur fer.

Fjölskyldan ætlar að koma saman á morgun, og ræða jarðarförina og allt í kringum það.

Það er sem sagt sorg hjá okkur núna og maður verður bara að leyfa sér að syrgja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ella Guðný

Samhryggist ykkur, alltaf erfitt þetar ástvinir falla frá.

Ella Guðný, 7.12.2008 kl. 00:41

2 Smámynd: Brussan

 ég samhryggist ykkur, það er gott að vera saman með sýnum nánustu á sorgarstund.  Njótið samverunnar.

Brussan, 7.12.2008 kl. 08:38

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

elsku bobba mín ég hugsa til ykkar. mundu bara vinur minn, þetta er ekki endanleg kveðjustund, bara í bili.

ást

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 7.12.2008 kl. 09:59

4 Smámynd: Sykurmolinn

Ég samhryggist Bobba mín.

Sykurmolinn, 7.12.2008 kl. 10:24

5 Smámynd: Marilyn

Knús og samúðarkveðjur til ykkar.

Marilyn, 7.12.2008 kl. 11:28

6 Smámynd: Helga Dóra

Samúðarkveðjur til ykkar....

Helga Dóra, 7.12.2008 kl. 13:31

7 Smámynd:

Ég sendi ykkur samúðarkveðjur elsku Bobba mín.

, 9.12.2008 kl. 10:41

8 identicon

Kæru hjón.

Innilegar samúðarkveðjur á þessari stundu, það er nú víst svo að það er sama hversu aldraður náinn ástvinur er þegar kallið kemur það er alltaf sárt að kveðja að eilífu.

Við Guðfinna sendum ykkur hlýjar hugsanir á þessum erfiðu stundum.

Sirrý og Guðfinna 

Sigríður (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 13:57

9 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Takk fyrir hlýjar kveðjur

Kristborg Ingibergsdóttir, 9.12.2008 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristborg Ingibergsdóttir

Höfundur

Kristborg Ingibergsdóttir
Kristborg Ingibergsdóttir
Skemmtilegasta dagmamman í bænum

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Brúðkaup 070
  • DSC04961
  • Skvísurnar mínar
  • Íris Ósk

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 336

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband