Gleðilegt nýtt ár.

Jæja þá er ég búin að vera í fráhaldi önnur jólin mínSmile Búin að eiga yndisleg jól og áramót upp í sveit í sumarbústað. Við fórum sem sagt, ég, Friðrik og Íris, 23 des ( eftir skötuveislu hjá Lindu og Aðalsteini) upp í Brekkuskóg í bústað sem vinkona mín, systur hennar og mamma eiga. Þær voru svo yndislegar að lána okkur bústaðinn sinn, sem er náttúrulega bara hjartagæskaHeart Vona að ég geti launað þeim á einhvern hátt. Við vorum þrjú yfir jólin,  Eygló systir og fjölskylda voru í bústað rétt hjá og hittumst við auðvita um jólin. Esther og Bogga, Ari Þór og fjölskylda komu í heimsókn á sunnudeginum. Við borðuðum öll saman og Ari og co gistu um nóttina það var mjög gaman, kjaftað langt fram á nótt. Á mánudeginum komu svo Díana og Grétar með 4 útlendinga sem voru hjá þeim um jólin og var verið að fara með þau að Gullfoss og Geysir. Allt saman yndislegt fólk. Við gömlu hjónin eyddum svo áramótunum tvö saman í sveitinni, eða nei aldeilis ekki tvö því kisurnar okkar voru með okkur, þær Þöll og Kleó. Ég er svo þakklát fyrir fráhaldið mitt. Þakklát fyrir að vera ekki búin að vera gjörsamlega í þoku yfir hátíðarnar.

Maðurinn minn var að skoða myndir af mér sem voru teknar í sumarbústað um jólin 2006 Devil og heyrði ég bara oj varstu virkilega orðin svona feit, það var einmitt eftir þau jól sem ég ákvað að nú yrði ég að gera eitthvað, burtséð frá því hvað ég var orðin mikil um mig þá leið mér skelfilega andlegaFrown Síðan hefur leiðin legið upp á við. Ég er búin að fá svo mikið, betri líðan andlega og líkamlega.

Núna í augnablikinu eru kannski ekki mjög bjartir tímar hjá mér. Það er samt fjölskyldumál sem fer örugglega vel. Ég allavega hef ákveðið að leggja það í hendurnar á mínum æðri mætti. Það hefur alltaf reynst vel fyrir mig.

Óska öllum gleðilegs nýs árs, með þakklæti fyrir árið sem leið.

Knús og kærleikur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir yndisleg jól mamma mín :)

Já það er um að gera að fara nógu oft á skeljarnar og tala við þann sem er í hæstu hæðum og leyfa honum að hafa áhyggjurnar og leysa þetta :)

Íris Ósk Kristborgardóttir (IP-tala skráð) 4.1.2009 kl. 02:56

2 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Gledilegt ár  og takk fyri bloggvináttu á árinu sem var ad lída.Ertu búin ad vera svona dugleg ad taka af tér?Ég er í stærri kanntinum og se ekki annad í hendi mér en ad ég turfi ad byrja í ræktinni núna og ekki seinna en tad.

Gangi tér og tínum vel í tessu ákvedna máli ykkur.

Hjartanskvedjur frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 4.1.2009 kl. 07:24

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ástarknús til þin kæra gamla og nýja vinkona !

til hamingju með Lífið !

AlheimsLjós til þín og þinna

Steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 4.1.2009 kl. 17:48

4 Smámynd: Kristborg Ingibergsdóttir

Takk fyrir fallegar kveðjur

Kristborg Ingibergsdóttir, 4.1.2009 kl. 22:36

5 Smámynd: Sykurmolinn

Gleðilegt ár Bobba mín og til hamingju með jól nr. 2 í fráhaldi.  Knús.  Sjáumst vonandi í kvöld

Sykurmolinn, 5.1.2009 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristborg Ingibergsdóttir

Höfundur

Kristborg Ingibergsdóttir
Kristborg Ingibergsdóttir
Skemmtilegasta dagmamman í bænum

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Brúðkaup 070
  • DSC04961
  • Skvísurnar mínar
  • Íris Ósk

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 336

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband