Færsluflokkur: Bloggar
12.8.2008 | 00:06
Hjáveituaðgerðir,,,,
Var að lesa bloggin um hjáveituaðgerðir,,, ég verð bara reið þegar ég heyri um þessar aðgerðir. Ég á frænku sem fór í svona aðgerð og jú jú hún grentist rosalega fyrst en svo tók fíknin aftur völdin og hún er orðin miklu verri heldur en hún var fyrir aðgerð.
Það er sem betur fer til miklu betri lausn, sem virkar á bæði andlegu og líkamlegu hliðina. Ég var einmitt að koma af fundi með fullt af flottum konum í fráhaldi. Konum sem vita af lausninni.
Tek undir það sem Habbý segir á blogginu sínu, það mætti bæta þessu inni í "búin að prófa allt" pakkann.
Þangað til næst, bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.8.2008 | 22:24
Clapton og Gay Pride
Tónleikarnir voru geeeeðveikir, Eric Clapton er bara flottur og þvílíkur snillingur. Og mér fannst Ellen Kristjáns og nýja hljómsveitin hennar mjög flott.
Maður var gjörsamlega búin eftir að hafa staðið í Egilshöllinni í rúma 4 tíma, loftið þarna inni var hræðilegt, enda var fólk að falla í yfirlið. En þetta var þess virði.
Svo var það Gleðigangan í dag, rosaflott, ég fór með krökkunum mínum, tengdadóttir, Díönu vinkonu og dóttir hennar í gönguna. Ein dóttirin var í atriði upp á palli og var hún rosalega flott stelpan þó ég segi sjálf frá. Var að fíla sig í botn.
Maður gengur kannski næst niður laugaveginn með aðstandenda hópnum, hver veit.
Var svo með Díönu og dóttir hennar í mat hjá mér áðan og ég er alveg svakalega ánægð eftir þennan góða dag.
Jæja það er best að fara að horfa á golf með karlinum.
Þangað til næst, bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.8.2008 | 23:17
Þreytt,,,,,
Mikið rosalega er erfitt að byrja aftur að vakna klukkan 7. Ég er bara syfjuð allan daginn, en kem mér svo aldrei á skikkanlegum tíma í rúmið.
Fór á mjög góðan fund í kvöld, kem alltaf svo nærð heim af fundum.
Er orðin spennt fyrir Eric Clapton tónleikunum annað kvöld, þeir verða örugglega geggjaðir. Best að fara að hvíla sig svo maður hangi nú uppi annað kvöld. Þangað til næst, góða nótt og bæjó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.8.2008 | 23:26
Hæ hæ,,,,,
Fyrsta vinnudegi lokið og viti menn ég lifði það alveg af :o) Reyndar ekki full mæting, en bara ljúft.
Nýju börnin tvö mættu í heimsókn og þau lofa góðu, voru mjög frjáls og ekkert óörugg.
Ég er orðin grútsyfjuð, enda 5 vikur síðan ég hef farið á fætur kl 7 að morgni. Þangað til næst, góða nótt og bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.8.2008 | 23:51
Vinna á morgun,,,,,,,,,,,,,,,,
Var að koma af alveg yndislegum fundi og líður svo vel eftir hann.
Það er svo merkilegt hvað manni finnst sumarfríið alltaf fljótt að líða.
Þetta sumar er búið að vera alveg frábært, og er auðvitað ekki búið þó að ég sé að byrja að vinna. Maður getur ennþá spilað golf og ég á eftir að skreppa til Hornafjarðar.
Það eru svona blendnar tilfinningar hjá mér, bæði kvíður mér fyrir að fá ný börn í aðlögun og svo hlakkar mig til að fá þau sem eru búin að vera hjá okkur.
Ég er búin að vera í svo mikilli hugarró undanfarið sem mér finnst alveg dásamlegt. Það þakka ég bara GSA, tólf sporunum og sponsornum mínum.
Jæja það er best að fara að koma sér í svefn svo maður verði til í slaginn í fyrramálið. Þangað til næst, góða nótt og bæjó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.8.2008 | 23:29
Ástfangnir golfarar,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Mikið er búið að vera gaman í dag. Við turtildúfurnar ákváðum að vera bara tvö saman í dag :o)
Við keyrðum austur fyrir fjall og spiluðum golf. Vorum bara tvö í holli, það er svo gott þegar maður fær þessa tilfinningu eins og maður sé bara unglingur og nýtrúlofaður. Við áttum svoleiðis dag.
Skruppum svo upp í bústað til Kalla bróðir og grilluðum. Komum heim kl. 22:30
Erum að spá í að skella okkur á Stuðmannatónleikana á morgun, hlakka til þess.
Jæja hef ekkert meira að segja núna. Þangað til næst, bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.8.2008 | 20:03
Verslunarmannahelgi........
Við hjónakornin ætlum að skella okkur austur til Kalla bróðir og taka einn golfhring á Dalbúa, það verður bara gaman.
Síðan grillum við örugglega hjá honum, svo ég fæ smá útilegufíling :o)
Vonandi heppnast helgin vel hjá öllum.
Þangað til næst, bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.7.2008 | 19:09
Alveg grilluð,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,
Það er nefnilega mjög erfitt að vera svona lengi í sólinni,,,,,,,,maður verður þreyttur á því.
Er ekki alveg ákveðin með helgina, hvað ég geri, fer kannski í útilegu með Díönu og Grétari, karlinn nennir ekki í útilegu svo hann verður bara heima.
En þetta kemur allt í ljós. Þangað til næst, bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.7.2008 | 22:35
Meðvirkni eða................... 4 sæti........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.7.2008 | 20:39
Heppin og hamingjusöm :o)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Kristborg Ingibergsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar