Færsluflokkur: Bloggar

Hamingjusöm ofæta.

Ég er alltaf að finna það betur og betur hvað nýji lífstíllinn minn er að gera mér gott. Það eru komnir 20 mánuðir síðan ég tók út viss kolvetni, t.d sykur, hveiti, kartöflur, pasta, hrísgrjón og fleira.
Ég var alveg viss um að það væri ekki hægt að hætta að borða þetta og alls ekki sykur.
Auðvita komu allskonar fráhvarfseinkenni en þegar það var búið var eins og þungt hlass færi af mér.
Ég upplifði mjög fljótlega mikið frelsi sem felst í því að þurfa ekki alltaf að vera að spá í hvað maður eigi nú að fá sér næst og hvað sé til upp í skáp.
Ég er svo mikill fíkill í sum kolvetni að ég get ekki hætt ef ég byrja að borða þau.
Það sem mér finnst líka svo frábært er að það er vísindalega sannað að matarfíkn er sjúkdómur, ekki bara aumingjaskapur. Það er ekki nóg að segja mér að borða minna og hreyfa mig meira, ég er búin að reyna það. Það virkar fyrir suma en ekki fyrir matarfýkil, við þurfum aðra lausn og hana hef ég fundið í GSA og í sporunum.
Mér finnst maturinn minn bara fallegur og æðislega góður. Og það er alltaf önnur máltíð á leiðinni.
Núna lifi ég bara fyrir einn dag í einu. Er í góðu vitundarsambandi við minn æðri mátt.
Langaði bara að tala um þetta núna. Þangað til næst, góða nótt og bæjó

Prjóni prjóni,,,,,,,,,,,,,

Jæja þá er skvísan sem sagt byrjuð í prjónaklúbb,,,,, og viti menn það var sko prjónað :o) Við vorum tvær sem byrjuðum, vonandi koma fleiri næst. Ekki það að þetta var alveg yndislegt kvöld þó svo að við værum bara tvær.

Það er svo rólegt hjá okkur í vinnunni, það var 50% mæting í dag. Sem sagt bara 5 börn. Hin eru veik. Haustið sem sagt komið með öllum sínum flensum. (og rigningu)

Þá verð ég bara að vera dugleg að taka sólhatt og lýsisperlur.
Þangað til næst, bæjó


Góð og slæm helgi,,,,,,

Slæm af því að Man Udt töpuðu fyrir Liverpool. Það er eitt að tapa, en að tapa fyrir Liverpool er skelfilegt.

En svo var helgin frábær af því að ég og vinkona mín fórum í sumarbústað með dætrum okkar. Það var alveg yndislegt.

Það er svo skrítið að þó svo að maður fari ekki nema í sólahring út úr borginni, burt frá öllu áreiti þá finnst mér ég alltaf hafa verið svo lengi að heiman. Það er kannski af því að minn heittelskaði var heima og litlu kisurnar mínar líka.

Bíð öllum góða nótt. Þangað til næst, bæjó.


Flensuballið byrjað..................

Jæja þá er það byrjað :o( Var að vona að ég hefði fengið minn skammt í vetur.
Var alltof oft lasin í vetur að mínu mati. En sem sagt nú er ég komin með einhverja lumbru,,,, hálsbólgu og hita.

Djö.... gátum við ekki unnið skotapylsin :o(

Gáfulegasta sem ég myndi gera núna er að fara að sofa, svo ég geti tekið á móti 10 litlum krílum í fyrramálið.

Þangað til næst, góða nótt og bæjó.


Geeeeðveikt stuð.........

Ég hef ekki skemmt mér svona vel lengi, lengi ég fór á Mamma Mía Sing-a-Long
í kvöld, með mömmu gömlu og Eygló systir,og vitið þið þetta var geggjað.
Allir sungu með, dönsuðu og klöppuðu, það var meira staðið í bíóinu heldur en setið. Mamma er alveg í skýjunum yfir þessari bíóferð. Ég var eitthvað svo uppnumin eftir þetta að ég hringdi í Írisi og sagði henni að við yrðum að skella okkur aftur. Ein alltaf svo fljótfær.
Þetta er búin að vera mjög fínn sunnudagur.Við hjónakornin vorum bara heima í dag í algjörri afslöppun,ég fór í mitt freyðibað og við borðuðum góðan mat.
Og svo var dagurinn toppaður með bíóferðinni.
Þangað til næst, góða nótt og bæjó.

Laugardagur til lukku,,,,,,,,,,,,,,,

Dagurinn fór eiginlega í það að bíða í biðröðum. Byrjaði samt á því að fara á hádegisfund og svo í mat hjá systir minni.

Við ákváðum svo að fara á útsöluna í Egg, þar fæst besti handáburður í bænum og alveg þess virði að fara í klukkutíma biðröð fyrir hann á 50% afslætti :o)

Ég fékk mér líka eldhúsljós, kerti, myndaramma og servéttur. Gerði sem sagt frábær kaup í dag.

Svo kom næsta biðröð í Krónunni og svo í Hagkaup, þar með er upptalið það sem ég gerði í dag.

Sit hérna og vona að golfinu fari að ljúka í sjónvarpinu svo ég geti farið að horfa á eitthvað annað. Það er sem sagt sjónvarpstími húsbóndans núna.

Þangað til næst, bæjó


Klukk......

Ég verð að svara klukkinu frá henni Maríu minni.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina.

1. Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
2. Kópavogshæli
3. Prentsmiðjan Oddi
4. Dagmamma

Fjórir staðir sem ég hef búið á.

1. Hafnarfjörður.
2. Hornafjörður.
3. Njarðvík.
4. Reykjavík.

Fjórar bíómyndir sem ég held uppá.

1. Pulp Ficion
2. Durty Dancing
3. Sound of music
4. Lion King

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar.

1. CSI
2. Law and order
3. House
4. Litla Bretland

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum.

1. Flórída
2. Danmörk.
3. Benedorm
4. Hornafjörður.

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg.

1. Vísir.is
2. Mbl.is
þar með er það upptalið

Fernt sem ég held uppá matarkyns.

1. Kjúklingur.
2. Rófustappa.
3. Butternut grasker
4. Kímkex

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft.

1. AA bókin
2. 12 og 12
3. 24 stunda bókin.
4. Ég er innra með þér.

Ég klukka Áslaugu, Huldu Lind, Sillu, Söru

Takk fyrir mig


Matarfíkn lævís og óútreiknanlegur............

Sjúkdómur,,, já svo sannarlega er ég með sjúkdóm. Lítill púki settist á öxlina á mér og reyndi að telja mér trú um að ég væri að missa af alveg frábærum kolvetnum.

Ég er svo sannarlega ekki tilbúin að fórna því sem ég hef fengið í fráhaldinu mínu.

En þetta segir mér að ég verð alltaf að vera á tánum og vera stöðugt að vinna prógrammið mitt.

Núna bið ég minn æðri mátt að taka frá mér þessa þráhyggju í viss kolvetni.

Ég er svo þakklát fyrir GSA og sponsorinn minn. Svo er minn Guð svo góður.

Þangað til næst, góða nótt og bæjó.


Komin heim endurnærð

Þá er sælan búin. Ég átti ekki von á því að lyggja í sólbaði í 20 stiga hita eins og ég gerði í dag. Alveg búin að vera yndisleg helgi.

Það jafnast ekkert á við það að geta kúplað sig út úr öllu áreiti hérna í borginni og farið upp í sveit, legið í heitum potti, borðað yndislegan GSA mat, og sólað sig.

Það er svo gott að vera með Eygló systir, við höfðum góðan tíma bara tvær meðan karlarnir fóru í golf. Ég elska hana alveg óendanlega mikið.

Hlakka líka til að hitta allar sætustu stelpurnar í bænum annað kvöld.

Þangað til næst, bæjó


Namminamm

Stappan var geggjuð. Góða nótt.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kristborg Ingibergsdóttir

Höfundur

Kristborg Ingibergsdóttir
Kristborg Ingibergsdóttir
Skemmtilegasta dagmamman í bænum

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Brúðkaup 070
  • DSC04961
  • Skvísurnar mínar
  • Íris Ósk

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband