Færsluflokkur: Bloggar

Frekar tóm,,,,,,,,,,,,

Er búin að vera frekar tóm undanfariðWoundering  Veit ekki hvort það er vegna þess að ég hef verið frekar slöpp. Var að spá í hvort ég væri komin með síþreytu, finnst ég eitthvað svo orkulausBlush  Þarf svo að fara að drífa mig í ræktina, en ég hef mig bara ekki í það. Veit alveg að það myndi gera mikið fyrir mig. Kannski hunskast ég úr því að ég er búin að skrifa það hérSmile Svo er svefninn alveg út úr kú hjá mér. Eins og t.d núna ætti ég að vera farin að sofa en ekki að hanga í tölvunni.

Finnst að ef ég skrepp á fund eða eitthvað (geri nú samt ekkert annað) að þá geti ég réttlætt það að hanga svo bara inni í einn eða tvo dagaUndecided En nóg af þessu væli.

Er annars búin að eiga mörg góð símtöl í kvöld.

KærleiksknúsInLove


Hæ hæ.

Vá hvað það er skrítið að vera að halda upp á 25 ára afmæli barnsins síns. Mér finnst ég ekki deginum eldri en 25 Grin Og samt er hún ekki elsta barnið mitt, eldri dóttirin er 26 og verður 27 í sumar. Svo er litla örverpið (sem er tæpir 2 metrar) að verða 23.

En það er gott að geta verið ungur í andaSmile  Dagurinn var sem sagt mjög góður í góðra vina hópi.

Á morgun ætlum við nokkra vinkonur að hittast og borða saman hádegismat, mig hlakkar mjög til.

Þess vegna er best að fara að koma sér í bælið núna.

Þangað til næst, bæjó.


Tölvusjúk??????eða,,,,,,,,

Ótrúlegt hvað það er óþægilegt að sofa yfir sigBlush Lenti í því í morgun, vaknaði við símann kl 8. Sem betur fer eru foreldrarnir eitthvað seinir í gang eftir hátíðirnar og fyrsta barn kom ekki fyrr en kl 8.30

Þetta hefst upp úr því að hanga svona lengi í tölvunni á Facebook á kvöldinSmile Varð nú samt að kíkja í hana núna.

Við Palli sonur minn fórum í kvöld og gengum frá jólaskrautinu hjá mömmu, fórum svo og kíktum á litla ömmustrákinn hennar Díönu vinkonu. Jesús minn hvað hann er yndislegur. Flottur 5 daga gamall strákur. Ég er sko skáamman Heart

Jæja best að kíkja aðeins á facebookSmile

 


Tveggja ára :o)

Jæja þá er maður búin að vera í fráhaldi í tvö ár í dagWizard  Ég er mjög stolt af mér. Eins og ég hef oft talað um hérna þá er þetta það einfaldasta sem ég hef gert. Lífið hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Ég er hamingusöm, glöð og frjálsHeart Auðvitað heldur lífið áfram að gerast, en ég þarf ekki að borða yfir tilfinningar. Ég tekst á við lífið með mínum æðri mætti eins og ég skil hann.

Kærleiksknús til allraInLove


Gleðilegt nýtt ár.

Jæja þá er ég búin að vera í fráhaldi önnur jólin mínSmile Búin að eiga yndisleg jól og áramót upp í sveit í sumarbústað. Við fórum sem sagt, ég, Friðrik og Íris, 23 des ( eftir skötuveislu hjá Lindu og Aðalsteini) upp í Brekkuskóg í bústað sem vinkona mín, systur hennar og mamma eiga. Þær voru svo yndislegar að lána okkur bústaðinn sinn, sem er náttúrulega bara hjartagæskaHeart Vona að ég geti launað þeim á einhvern hátt. Við vorum þrjú yfir jólin,  Eygló systir og fjölskylda voru í bústað rétt hjá og hittumst við auðvita um jólin. Esther og Bogga, Ari Þór og fjölskylda komu í heimsókn á sunnudeginum. Við borðuðum öll saman og Ari og co gistu um nóttina það var mjög gaman, kjaftað langt fram á nótt. Á mánudeginum komu svo Díana og Grétar með 4 útlendinga sem voru hjá þeim um jólin og var verið að fara með þau að Gullfoss og Geysir. Allt saman yndislegt fólk. Við gömlu hjónin eyddum svo áramótunum tvö saman í sveitinni, eða nei aldeilis ekki tvö því kisurnar okkar voru með okkur, þær Þöll og Kleó. Ég er svo þakklát fyrir fráhaldið mitt. Þakklát fyrir að vera ekki búin að vera gjörsamlega í þoku yfir hátíðarnar.

Maðurinn minn var að skoða myndir af mér sem voru teknar í sumarbústað um jólin 2006 Devil og heyrði ég bara oj varstu virkilega orðin svona feit, það var einmitt eftir þau jól sem ég ákvað að nú yrði ég að gera eitthvað, burtséð frá því hvað ég var orðin mikil um mig þá leið mér skelfilega andlegaFrown Síðan hefur leiðin legið upp á við. Ég er búin að fá svo mikið, betri líðan andlega og líkamlega.

Núna í augnablikinu eru kannski ekki mjög bjartir tímar hjá mér. Það er samt fjölskyldumál sem fer örugglega vel. Ég allavega hef ákveðið að leggja það í hendurnar á mínum æðri mætti. Það hefur alltaf reynst vel fyrir mig.

Óska öllum gleðilegs nýs árs, með þakklæti fyrir árið sem leið.

Knús og kærleikur.


Yndislegur dagur.

Já við hjónakornin eigum 6 ára brúðkaupsafmæli í dagHeart  Vorum með jólakaffi fyrir fjölskyldumeðlimi og var það alveg dásamlegt. Dagurinn byrjaði á því að minn heittelskaði vakti mig með minni yndislegu morgunverðar skonsu. Og svo gaf hann mér peysu í tilefni dagsins.

Ég skrapp svo á fund í hádeginu og svo var farið að skreyta kökur og búa til súkkulaði.

Það tilheyrir að fá heitt súkkulaði með rjóma á svona dögum. Ég aftur á móti fékk mér aftur skonsuna góðu og gott kaffi Smile 

Núna bíður maður bara eftir skötunni sem Aðalsteinn mágur og Linda ætla að bjóða okkur í á Þorláksmessu namminamm.

Ef ég skyldi ekki nenna að blogg aftur fyrir jól, þá segi ég GLEÐILEG JÓL og hafið það sem allra best yfir þessa helgu hátíð.

Knús knús


Jólaljós, jólapkkar og jólagreinar,,,,,,,,,,,,,,

Jæja þá erum við mútta búnar að láta setja ljós á leiðið hjá pabba blessuðumHalo Fórum svo með greinar á leiðin hjá ömmu, afa og Óskari bróðir. Alltaf gott þegar þetta er búið.

Bauð mömmu svo í kvöldmat, og svo fórum við Íris mín heim til hennar og pökkuðum inn fyrir hana jólagjöfunum. Alltaf viss léttir þegar maður er búin með mömmupakkan Smile Ég á svo eftir að kaupa tvær jólagjafir. Kláraði að kaupa handa mínum heittelskaða í dag InLove

Jæja nú er ég orðin þreytt og syfjuð og bíð góða nótt Heart


Gott fólk,,,

Ég var í fertugsafmæli hjá vinkonu minni í kvöld, mjög gaman. Þar voru náttúrulega mamma hennar og systur sem eru með yndislegri manneskjum sem ég hef hitt. Það er svo gaman að vera innan um svona gott fólk. Mér líður alltaf svo vel nálægt þeim.

Að allt öðru, Ég næ gjörsamlega ekki upp í nefið á mér fyrir reiði út í verðlagið sem er orðið á öllum sköpuðum hlutum. Ég fór í Krónuna að kaupa mér sjampó sem ég nota, það hefur hingað til kostað á milli 400 og 500kr en í dag kostar það 899kr Angry Hvað er eiginlega í gangi.  Ég verð að reyna að finna mér eitthvað annað sjampó eða bara hætta að nota sjampó grrrrrrrrDevil

Farin að sofa áður en ég verð brjáluð úr reiði. Þangað til næst, bæjó.


Jólastússið góða...............

Við skelltum okkur í Smáralindina í dag, ég og mín ástkæra dóttir. Byrjuðum reyndar á því að fara á bílskúrssölu sem var reyndar ekki í bílskúr, heldur í risíbúð sem við bjuggum í fyrir 18 árum. Fórum eiginlega bara af forvitni til að skoða íbúðina. En ég kunni ekki við annað en að kaupa eitthvað, svo ég keypti eitt jólaskraut.Smile

Þá var haldið í Lindina og beint á kaffihús. Hittum Trausta bróðir þar. Ætluðum á tónleika í Vetragarðinum kl 16. En svo voru þeir ekki byrjaðir kl 16.30 svo við Trausti skelltum okkur í Fjörðinn. Þar eru allskonar markaðir á ganginum sumt er rosalega flott. Þar náði ég í þrjár jólagjafir.

Fórum svo í kaffi til múttu. Ég kíkti þar á þáttinn hans Loga, og guð minn góður hvað það er hræðilegt að sjá hana Ásdísi Rán, greyið stelpan hún á bara bágt.

Núna sitjum við hérna gamla settið, ég í tölvunni og hann að horfa á boltann. En við erum með kveikt á kertum svo þetta er bara kósýInLove

Þangað til næst, góða nótt og bæjó.

 


Dagarnir mínir.....................

Jæja þá er kistulagningin búin. Mér finnst svo erfitt að fara í kistulagningu. Jarðarförin er svo á morgun Halo Hef minn æðri mátt með mér.

Sonurinn átti að fá bæjarleyfi í dag af Vogi og fara svo á Staðarfell á morgunn, en hann var ekki í nógu góðu jafnvægi svo hann fer ekki fyrr en í næstu viku. Ég var bara fegin, því ég mátti ekkert vera að því að vera með honum í dag. ( eigingyrni?????)

Sit hérna með kveikt á fullt af kertum og hlusta á lögin úr Mama Mia.

Ætla að klára jólagjafainnkaup á laugardaginn og svo bíð ég bara eftir jólunum Smile

Þangað til næst. Góða nótt og bæjó


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kristborg Ingibergsdóttir

Höfundur

Kristborg Ingibergsdóttir
Kristborg Ingibergsdóttir
Skemmtilegasta dagmamman í bænum

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Brúðkaup 070
  • DSC04961
  • Skvísurnar mínar
  • Íris Ósk

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 379

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband