Færsluflokkur: Bloggar

14 sæti!!!!!!!

Var það ekki... þetta er alltaf svona hjá okkur, erum alltaf búin að vinna keppnina og hvað svo... skítum á okkur. Ekki misskilja mig, auðvitað hélt ég með þeim. Mér fannst lagið sem vann ÖMURLEGT vægt til orða tekið!!!! Ég held að ég hafi ekki horft á júróvision í 15 ár fyrr en núna, er viss um að ég nenni því ekki aftur þetta var jafn leiðinlegt og mig minnti. Jæja ég ætla að hætta að tala um þessa keppni.
Er búin að vera ein heima í kvöld með kisunum mínum, finnst það frábært.
Ég var að hugsa um hvað sambandið mitt við börnin mín er orðið frábært, þau eru náttúrulega orðin fullorðin, og kannski er það vegna þess að ég sætti mig við það og sleppti tökunum sem sambandið varð svona gott. Stelpurnar mínar fóru báðar í bústað um helgina, ekki saman samt, en þær eru báðar búnar að gefa sér tíma til að hringja í múttu og láta vita af sér og bara til að heyra í mér. Hann Palli minn hringir ekki kerlinguna, en ég hringi bara í hann þessa elsku. Jæja þá er best að fara að halla sér á koddann. Þangað til næst, bæjó.

Áfram Ísland

Búin að vera örg út í karlinn :o( sagði honum að ef ég myndi falla í fráhaldinu mínu þá væri það sko HONUM að kenna því hann væri alltaf og takið eftir alltaf með óæskileg kolvetni fyrir framan mig. Hann var sem sagt að borða ístertu sem ÉG bjó til og borða hrís sem ÉG keypti handa honum.... Allavega þá þurfti ég alveg rosalega á því að halda að fara á fundinn í kvöld. Hann var nú ekki fjölmennur en rosalega góðmennur, við vorum 5 flottar konur:o)
Kompan orðin fín og ég komin í betra samband við minn æðri mátt. Fer sælmað sofa :o)
Rosastolt af júróvisíonparinu okkar. Þangað til næst, bæjó.

Kompudagur.

Jæja þá er maður komin niður á jörðina eftir sigur gærdagsins. Við hjónin ætlum að skreppa niður í kompu (ruslakompu) og reyna að taka aðeins til og henda. Er að safna kjarki :o) En ef ég ætla að ná á fund..... sem ég ætla að gera, því það er það sem skiptir máli fyrir fráhaldið mitt þá er best að fara að drífa sig. Þangað til næst, bæjó

MEISTARAR

GLORY GLORY MANCHESTER UNITED!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Við erum meistarar, við erum bestir. Frábær leikur, en þar sem ég er pínu meðvirk þá fann ég smá til með Chelsemönnum... (eða ekki). Ég var að velta því fyrir mér áðan hvernig stæði á því að maðurinn minn léti fótboltalið stjórna líðan sinni,, en ó my god ég var alveg að pissa á af spenningi. Jæja þá er að horfa á verðlaunaafhendinguna. Þangað til næst, bæjó.

Gott að komast á fund

Jæja dagur að kveldi komin.....talar ekki gamla fólkið sem er í golfi svona :o) Komst á fundinn minn í kvöld sem var frábært. Gerði líka góðverk í dag, fór og heimsótti mömmu og var hjá henni í tæpa 2 tíma sem er afrek út af fyrir sig, hún er svo veik. Ég á svo erfitt með að umgangast hana, en geri mitt besta.
Ég er eitthvað að klúðra svefninum mínum, fer allt of seint að sofa ;o( Talandi um að einhver sé veikur í hausnum
Verð að bæta mig þar. Sem sagt GÓÐA NÓTT. Þangað til næst,bæjó

Fyrst golfhringurinn

Jæja þá var fyrsti golfhringurinn spilaður í dag:o) Ég get ekki sagt að ég komi vel undan vetri.....en ég hef það mér til afsökunnar að ég gat svo lítð spilað í fyrra. Fórum fjögur saman, ég, Friðrik, Eygló og Gísli. Það var bara skemmtilegt, það góða við það að vera lélegur í golfi er að maður fær að slá miklu fleiri golfhögg ;o) ( Pollíanna mætt) Svo var matarklúbburinn í kvöld, alltaf svo gaman að hitta þau og borða góðan mat. Nú er maður sem sagt orðin dauðuppgefin en alsæl eftir þessa djammhelgi.Þangað til næst góða nótt og bæjó

Þreytt en ánægð

Er alveg rosalega ánægð eftir kvöldið með GSA vinkonum mínum. Þetta eru náttúrulega skemmtilegustu stelpurnar í bænum. Þemað átti að vera glamúr og glimmer en var aðeins meira svona krulluþema.... rosaflott, hefði viljað vera með hár eins og Helga Dóra. Ella Sigga og Guðrún Vaka voru nú mestu glamúrin ekkert smá flottar.
Ég verð að hætta núna, er hætt að sjá á skjáinn fyrir þreytu. Ætla að fara að sofa með risa bros á vör. Þangað til næst, góða nótt og bæjó

Hressari....

Jæja er vonandi að skríða saman eftir flensuskratta. Var að spá í það hvort ég væri í röngu starfi....tek allar pestar sem litlu krúttin koma með alveg óbeðin :o( en nei þetta starf er mjög skemmtilegt og gefandi fyrir utan þetta. Ég er orðin spennt fyrir laugardagstjúttinu, en maður er náttúrulega komin með hausverk yfir því í hverju maður á að vera..... en það er alltaf svoleiðis þegar ég er að fara eitthvað, kannist þið við þetta :o) En þangað til næst, bæjó

Alveg rugluð

Nú er ég alveg búin að vera rugluð í hausnum, vissi ekki hvað ég ætti að gera eftir vinnu.... átti ég að fara í ræktina, í golf, út að labba eða bara eitthvað í heimsókn,......... sem sagt mér leiddist Smile   en svo hringdi Díana vinkona og bauð mér í leikhús..... jibbý málið var leist, en viti menn leiksýningunni var frestað til föstudags arrrrrrrrrrrgW00t   en einn ljós punktur ég veit hvað ég geri á föstudaginnSmile  En allavega núna ákvað ég að hanga bara í tölvunni. Þangað til næst, bæjó

Komin heim...

Jæja þá er þessi yndislega ferðahelgi að baki... fórum til Hornafjarðar á laugardaginn og tókum tengdó með. Vorum komin til Grétu og Inga kl. ca 17, það er nú alveg dásamlegt að vera hjá þeim, þau eru bæði svo yndislegt fólk. Á sunnudeginum var svo haldið til Breiðdalsvíkur í fermingu og alveg óvænta skírn Sandra lét skíra Hrannar Inga. Það var matur í veislunni þannig að ég þurfti ekki að borða nestið mitt... Fórum svo aftur til Hafnar og heimsóttum Söndru Lind í nýja húsið hennar, alveg rosa stórt og fínt hús, maður á örugglega eftir að snýkja sér gistingu hjá henni seinna. Nú svo fórum við heim til Inga og Grétu og auðvitað beint í heita pottinn......  Við komum heim í dag kl. 19:30. Ég var svo þreytt eftir ferðina að ég nennti ekki á fund Undecided En þessi helgi var alveg dásamleg, ég var með allt með mér matarlega séð sem er kannski ekki til á öllum heimilum, eins og t.d hveitikím, sojamjöl og xylitol (svo var þetta allt til)  Fráhaldið mitt er það mikilvægasta hjá mér og mér tókst að vigta og mæla 3 máltíðir á dag en þetta var stundum erfitt því það var allt fljótandi í óhollustu alla helginaDevil En ég er algjör hetjaHalo Best að hætta núna áður en ég missi mig í grobbi.Þangað til næst, bæjó

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kristborg Ingibergsdóttir

Höfundur

Kristborg Ingibergsdóttir
Kristborg Ingibergsdóttir
Skemmtilegasta dagmamman í bænum

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Brúðkaup 070
  • DSC04961
  • Skvísurnar mínar
  • Íris Ósk

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband