Komin heim í heiðardalinn......

Alltaf er nú gott að koma heim. Tvö af þremur börnunum mínum og tengdadóttir bókstaflega tóku á móti okkur á bílaplaninu,,,,, ekkert smá næs, svo kom miðlungurinn mjög fljótlega, mikið rosalega þykir mér nú vænt um þau öll. Svo þegar inn var komið tóku yndislegustu kisur í heimi á móti okkur, mikið voru þær nú glaðar að sjá að "mamma og pabbi" voru loksins komin heim, annars væsir nú ekki um þær blessaðar það er sko vel hugsað um þær af nágrannakonu okkar sem er algjör dýrakona.
En sem sagt ferðalagið var bara yndislegt, vorum eina nótt á Flúðum fórum svo þaðan og vestur í Varmaland og vorum þar í tvær nætur og enduðum þetta í Varmahlíð í þrjár nætur. Fórum á Hofsós og skoðuðum Vesturfarasetrið ekkert smá merkilegt að lesa um og skoða þetta allt saman. Erum sem sagt búin að prófa að vera í ausandi rigningu og brjáluðu roki í tjaldvagni og það er ekkert mál, en ég held að við fáum okkur nú frekar fellihýsi, ég vil hafa svolítið meira kósí. En megnið af tímanum var annars bara gott veður. En nú verð ég að fara að sofa, það er allt komið í rugl hjá mér. Þangað til næst, góða nótt og bæjó

Farin í frí :o)

Jæja þá er komið að því að skella sér í tjaldvagnaferðina. Við hjónin leigðum okkur vagn hjá VR. Þetta er annað sumarið sem við gerum það og nú verður tekin ákvörðun um það hvort við kaupum okkur vagn. Það var alveg bongó blíða allan tíman sem við vorum í ferðinni í fyrra svo nú sjáum við til. Við höfum hugsað okkur að elta bara sólina eða alla vega vera þar sem er þurrt. Ég er búin að baka helling af kím kökum og ætla að baka mér fetaostabrauð í fyrramálið, það er um að gera að vera vel nestaður. En ég blogga svo um ferðina eftir viku. Þangað til næst, bæjó.

Frostpinni yessssssssssssss :o)

Mikið er ég glöð yfir nýja djúsnum ammm hann er algjört æði,,,,,,TAKK Helga Dóra fyrir að vera svona rosalega hömlulaus og finna svona gott. Ég fór náttúrulega og keypti sinn hvor fyrir okkur systurnar, fór svo í IKEA og keypti frostpinnabox og nú er ég bara að bíða eftir að þetta frjósi. Hlakka svo til að fá frostpinna. Er maður í lagi eða hvað????
Jæja nú styttist í tjaldvagnaferðina, fer á fimmtudag, veit ekki hvert, bara þangað sem sólin verður. Þangað til næst, bæjó

Sybbin zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz

Var að drattast heim........ Fór á æðislega góðan fund, hef ekki komist á fund í 10 daga og vantaði næringu sem ég fékk. Kíkti svo á Díönu og þaðan til mömmsu gömlu. Er orðin grútsyfjuð ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ Góða nótt. Þangað til næst, bæjó.

Náttfatadagur....

Það er náttfatadagur hjá mér í dag,,,,,, nenni ekki að gera neitt. Nema elda, vigta og borða. Karlinn ætlaði að fá mig með sér í búðir, hann vantar buxur, en ég nenni því engan veginn. Hefði einhver trúað því sem okkur þekkir að HANN hefði átt frumkvæðið af því NEI...........Hvað er með karla og DR Phil, þeir þola hann ekki, minn fær grænar bólur þegar ég horfi á hann,, sem er ekki oft reyndar, en þá fær maður langan fyrirlestur um hvað þetta sé ömurlegur maður. Reyndar gat ég notað á hann einu sinni eitthvað sem Phil tók fyrir í einum þætti og það var eins og skvetta vatni á gæs og ekki batnaði álit hans á honum við það. Frekar skondið.

Jæja best að fara að gá hvort ég geti ekki fundið eitthvað skemmtilegt í imbanum. Þangað til næst, bæjó


Komin heim brún og sæt......

Já við vorum ekkert smá heppin með veður alla vikuna.........glampandi sól og hiti, maður dró bara dínuna út á pall á morgnana og lá svo allan daginn. Það var ekki farandi í heita pottinn fyrr en seint á kvöldinn. En sem sagt þessi sæla er búin í bili. Fór í brúðkaup hjá syni bróður míns í dag, það var auðvita alveg rosa flott. Við systurnar sem vigtum og mælum fórum og töluðum við kokkinn og báðum um helling af salati og bara kjöt enga sósu,,,,,,,,hann varð þetta litla geðvondur og ranghvolfdi augunum, aðstoðarkokkurinn var mjög kurteis og sagði að þetta væri ekkert mál, svo þegar maturinn kom hafði kokkurinn séð að sér og var hinn ljúfasti, vildi allt fyrir okkur gera. Enda sendum við honum bara góða strauma og brostum voða sætt til hans. Jæja þá er að kíkja aðeins á imbann og fara svo að sofa. Þangað til næst, góða nótt og bæjó.

Góður dagur :o)

Fínn dagur í dag. Eftir mína dásamlegu morgunverðarskonsu með kanilsteiktum eplum, jarðarberjum, ananas og skyri nammmmmmm........ fór ég til brjóstgóðu systur minnar og bjó til svoleiðis handa henni líka. Síðan fórum við tvær og Íris mín líka í Smáralindinna til saumakonu og föt sett í þrengingu. Þegar við vorum búnar að þvælast þar í góðan tíma var haldið aftur heim til Eyglóar. Íris mín fékk sér bjútíblund en ég bjó til GSA pizzuna góðu fyrir okkur systur, sjúklega góð. Jæja svo fór ég á fund í kvöld og svo endaði þessi góði dagur á Kaffi París með eldhressum GSA konum sem mér þykir mjög vænt um. Þær eru allar algjörar perlur. Hvað er hægt að hafa það betra???
Á morgun er svo ferðinni heitið í sumarbústað þannig að ég blogga ekki á næstunni. Þangað til næst, bæjó

Fyrsta barnabarnið ??????????? :o) Djók

Hún er svo fyndin hún Esther mín, hún er búin að vera að blogga á síðunni sinni um hana Stínu sína sem dó.........það er sem sagt fluga sem er fyrsta barnabarnið mitt. Verð að koma þessu að, því þetta leit út eins og hún hefði verið að missa barn. Það er búið að vera frekar fyndið að lesa þessa framhaldssögu hjá henni, hún er með mjög frjótt ímyndunarafl stelpan. Vona að það hafi ekki margir fengið sjokk sem lásu athugasemdina frá henni og haldið að ég hefði verið að missa barnabarn í alvöru. Þangað til næst, bæjó

Frábært líf :o)

Þetta er dásamlegt líf........... enginn organdi börn, bara við gamla settið að sloppast og hafa það náðugt. Ég elska það líka að klæða mig í betri föt og fara út að spóka mig........... Hlakka líka svakalega til þegar ég get farið að spila golf, sem verður líklega í næstu viku. Átti mjög góðan dag í gær, kláraði síðast 9 sporið mitt :o) Var svo með henni Díönu vinkonu minni (systir) allan daginn, fórum í nokkrar (margar) búðir og svo bauð hún mér í geðveikt góða GSA pissu. Fórum við svo á fund og enduðum þennan frábæra dag hjá múttu. Mamma var bara hress, enda nýbúin að skreppa á æskuslóðir í Stykkishólm. Jæja nú ætla ég að fara að tjatta við kallinn. Þangað til næst, bæjó

Hamingja.......

Jesús minn hvað þetta voru flott brúðhjón, ekki það að ég hafi séð ljót brúðhjón, en fyrir utan það að vera í glæsilegum brúðarfötum og allt það þá eru þessi yndislegu hjón með svo fallegar sálir og yndislega útgeislun. Svo leynir brúðurin svona á sér,,,hún er sem sagt frábær söngkona og söng svo fallega til nýbakaðs eiginmanns síns, alveg dásamlegt. Hann fór upp á svið og þakkaði henni fyrir að játast sér og fór svo með ljóð til hennar....... Maður var næstum farin að gráta af hamingju. Veislan var alveg frábær, mjög góður matur, fullt af salati og eldað grænmeti sem ég mátti borða og svo var kalkúnabringa og nautakjöt. Það var líka flottur forréttur og eftirréttur sem ég lét eiga sig. Núna er ég bara að bíða eftir brúðhjónunum, hlakka svo til að heyra í þeim svona daginn eftir, þau eiga sem sagt tvö börn sem eru hérna hjá mér að bíða líka. Þangað til næst, bæjó

KAUPÆÐI.........Brúðkaup

Er alveg að missa mig á öllum þessum útölum........... verð að halda mig frá Kringlunni og Smáralindinni, búin að kaupa mér 2 kjóla, 2 pils, jakka, skó, veski og eitthvað fleira. Held að ég sé kaupfíkill, en eins og hún Díana mín segir alltaf "ég á þetta skilið" haha gott að nota það bara. Karlinn minn var eitthvað að skjóta á mig að ég mætti ekki skyggja á brúðina í brúðkaupinu á morgun :o) Ég verð bara flottust, alla vega af gestunum :o) kannski er Íris ekki sammála hún á svo geggjaðan kjól. Jæja best að fara að sofa.Þangað til næst, bæjó

Fallegur dagur

Jæja það má nú eiginlega segja að nú sé fyrsti dagur í sumarfríi, ég svaf nefnilega í allan gærdag. Það er alveg dásamlegt veður allavega út um gluggan. Ég veit ekki hvort ég verð til stórræðna í dag, treysti mér allavega ekki út núna. Get sest út á svalir þegar ormarnir hans Friðriks eru búnir að sofa þar í dag. Fæ svo sponsíu í kvöld í sporavinnu. Það er eiginlega besta andlega meðalið mitt. Læt þetta duga núna, er eitthvað svo tóm. Þangað til næst, bæjó

Sveitarómantík......

Frekar sljó eftur svæfinguna. Var að lesa blogg hjá einni sem er til í að búa í sveit og omægod............ég fékk svona sveitarómantíksfílingu (frekar langt orð) Mig hefur alltaf dreymt um að búa upp í Mosfellsdal, finnst það svo rómantískur staður. En ég myndi ekki nenna að vera með nein dýr nema kisurnar mínar og karlinn mætti kannski fá sér hund, þar með er það upptalið. En sem sagt við HD ættum kannski bara að flytja saman á svona samyrkjubú haha. Hætt að bulla. Þangað til næst, bæjó.

Sumarfrí jabbadabbadú................................

Sæla sæla sæla komin í hið langþráða sumarfrí yesssss. Og hvað ætti ég svo að gera t.d EKKI NEITT..... það væri ágætt að byrja á því og svo tekur við sumarbústaður og útilega þar á eftir. Já og tvær brúðkaupsveislur......... sem sagt nóg að gera, hlakka bara til. Þessi vika fer í snyrtingu, fyrst eru það neglur svo vax og svo hárið, maður verður flottur eftir vikuna. Þangað til næst, bæjó

Tjaldvagn eða fellihýsi..... spurning

Komin heim eftir velheppnaða útilegu. Við hjónin leigðum okkur tjaldvagn í fyrrasumar og aftur í sumar, vorum að spá í að kaupa okkur svoleiðis, en...... svo vorum við í fellihýsinu með Díönu og Gretari um helgina og það er sko himinn og haf þarna á milli. Allavega förum við í tjaldvagnaferð í sumar, svo spáum við í hitt seinna. Það er alveg magnað hvað maður verður endurnærður á því að komast burt úr þessu áreiti hérna í bænum, þó svo að það sé ekki nema í einn sólahring. Við enduðum þetta svo í grilli hjá þeim hjónum og í sólbaði á frábæra pallinum þeirra. Núna er ég bara þreytt og alsæl. Þangað til næst, bæjó

Sólbað....... Útilega

Jæja þá er það ákveðið....... fer í útilegu í fyrramálið og karlinn ætlar með, jibbý :o) Erum að fara að Úlfljótsvatni, ég komst ekki á sæluhelgi GSA, þannig að ég fer bara þangað núna, haha. Díana og Gretar eru farin, búin að græja fellihýsið og gera allt klárt fyrir prinsessuna. Vonast til að geta legið bara í sólbaði, er farin að þrá það að liggja bara og slappa af. Fór í golf í kvöld með Eygló og Gulla, alltaf jafn gott að vera úti á velli, anda að sér góðu lofti og svo auðvitað slá bolta. Jæja vona að allir hafi munað eftir að hringja og gefa í krabbameinssöfnunina. Þangað til næst, góða nótt og bæjó.


Ferðalag????????

Ekkert mjög mikið að gerast hjá mér í dag. Fór aðeins í kaffi til Eyglóar eftir kvöldmat svo til múttu.........Sinnti síðan móðurhlutverkinu og var hjá dóttur minni til kl að verða tólf. Sem sagt eina ferðina enn að fara of seint að sofa. En er samt alveg rosalega ánægð með lífið þessa dagana. Vinkona mín og maðurinn hennar voru að bjóða okkur hjónunum í fellihýsaferð um helgina... á eftir að spjalla við bóndann, en ég er alla vega að spá í að skella mér, hefði bara gott af því held ég. Þangað til næst,bæjó

Fyrsti fuglinn í golfinu!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Þessi dagur er sko búin að vera fínn, slappaði vel af, var svo boðið í kvöldmat hjá minni frábæru systir. Svo skelltum við systurnar okkur í golf og viti menn ég fékk fyrsta fuglinn.............frábært.
Það á náttúrulega að reyna aftur annað kvöld :o) Er að safna kjarki fyrir síðast 9 sporið sem verður farið í á morgunn. En eins og alltaf legg ég þetta í hendurnar á mínum æðra mætti og þá getur það bara farið vel.
Styttist óðum í sumarfríið bara 7 dagar,,,, jibbý.
Þangað til næst, bæjó

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Kristborg Ingibergsdóttir

Höfundur

Kristborg Ingibergsdóttir
Kristborg Ingibergsdóttir
Skemmtilegasta dagmamman í bænum

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Brúðkaup 070
  • DSC04961
  • Skvísurnar mínar
  • Íris Ósk

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband