6.12.2008 | 23:57
Hvíl í friði
Hann tengdafaðir minn fékk hvíldina í gærkvöldi. Það var erfið stund að vera viðstödd þegar slökkt var á tækjunum. Átta af tíu börnunum hans voru viðstödd,tengdamamma og ég.
Það var svo lítil kveðjustund inn á annari stofu, þegar búið var að laga hann til. Djákninn las bæn og við fórum með bæn, falleg stund. Síðan kvöddum við hann.
Það er nú bara svoleiðis að þó fólk sé orðið fullorðið þá er mikil sorg sem maður fer í gegn um þegar ástvinur deyr. Hann Friðrik minn er nú ekki mikið að flagga tilfinningunum, en hann talar um sorgina, sem betur fer.
Fjölskyldan ætlar að koma saman á morgun, og ræða jarðarförina og allt í kringum það.
Það er sem sagt sorg hjá okkur núna og maður verður bara að leyfa sér að syrgja.
Um bloggið
Kristborg Ingibergsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 449
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Samhryggist ykkur, alltaf erfitt þetar ástvinir falla frá.
Ella Guðný, 7.12.2008 kl. 00:41
ég samhryggist ykkur, það er gott að vera saman með sýnum nánustu á sorgarstund. Njótið samverunnar.
Brussan, 7.12.2008 kl. 08:38
elsku bobba mín ég hugsa til ykkar. mundu bara vinur minn, þetta er ekki endanleg kveðjustund, bara í bili.
ást
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 7.12.2008 kl. 09:59
Ég samhryggist Bobba mín.
Sykurmolinn, 7.12.2008 kl. 10:24
Knús og samúðarkveðjur til ykkar.
Marilyn, 7.12.2008 kl. 11:28
Samúðarkveðjur til ykkar....
Helga Dóra, 7.12.2008 kl. 13:31
Ég sendi ykkur samúðarkveðjur elsku Bobba mín.
, 9.12.2008 kl. 10:41
Kæru hjón.
Innilegar samúðarkveðjur á þessari stundu, það er nú víst svo að það er sama hversu aldraður náinn ástvinur er þegar kallið kemur það er alltaf sárt að kveðja að eilífu.
Við Guðfinna sendum ykkur hlýjar hugsanir á þessum erfiðu stundum.
Sirrý og Guðfinna
Sigríður (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 13:57
Takk fyrir hlýjar kveðjur
Kristborg Ingibergsdóttir, 9.12.2008 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.