9.8.2008 | 22:24
Clapton og Gay Pride
Tónleikarnir voru geeeeðveikir, Eric Clapton er bara flottur og þvílíkur snillingur. Og mér fannst Ellen Kristjáns og nýja hljómsveitin hennar mjög flott.
Maður var gjörsamlega búin eftir að hafa staðið í Egilshöllinni í rúma 4 tíma, loftið þarna inni var hræðilegt, enda var fólk að falla í yfirlið. En þetta var þess virði.
Svo var það Gleðigangan í dag, rosaflott, ég fór með krökkunum mínum, tengdadóttir, Díönu vinkonu og dóttir hennar í gönguna. Ein dóttirin var í atriði upp á palli og var hún rosalega flott stelpan þó ég segi sjálf frá. Var að fíla sig í botn.
Maður gengur kannski næst niður laugaveginn með aðstandenda hópnum, hver veit.
Var svo með Díönu og dóttir hennar í mat hjá mér áðan og ég er alveg svakalega ánægð eftir þennan góða dag.
Jæja það er best að fara að horfa á golf með karlinum.
Þangað til næst, bæjó
Um bloggið
Kristborg Ingibergsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
vá hvað ég öfunda ykkur mig langaði svo í gönguna en litli kúluprins ákvað að láta mömmu sína vera bara flökurt heima.
ég fer á næsta ári :)
Ætli við verðum þá ekki bara kanski báðar í aðstandendahópnum.
Hafrún Kr., 9.8.2008 kl. 22:39
Íris var flottust auðvitað.... Ætla að enda þér myndirnar af henni...
Helga Dóra, 10.8.2008 kl. 00:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.