12.5.2008 | 22:16
Komin heim...
Jæja þá er þessi yndislega ferðahelgi að baki... fórum til Hornafjarðar á laugardaginn og tókum tengdó með. Vorum komin til Grétu og Inga kl. ca 17, það er nú alveg dásamlegt að vera hjá þeim, þau eru bæði svo yndislegt fólk. Á sunnudeginum var svo haldið til Breiðdalsvíkur í fermingu og alveg óvænta skírn Sandra lét skíra Hrannar Inga. Það var matur í veislunni þannig að ég þurfti ekki að borða nestið mitt... Fórum svo aftur til Hafnar og heimsóttum Söndru Lind í nýja húsið hennar, alveg rosa stórt og fínt hús, maður á örugglega eftir að snýkja sér gistingu hjá henni seinna. Nú svo fórum við heim til Inga og Grétu og auðvitað beint í heita pottinn...... Við komum heim í dag kl. 19:30. Ég var svo þreytt eftir ferðina að ég nennti ekki á fund En þessi helgi var alveg dásamleg, ég var með allt með mér matarlega séð sem er kannski ekki til á öllum heimilum, eins og t.d hveitikím, sojamjöl og xylitol (svo var þetta allt til) Fráhaldið mitt er það mikilvægasta hjá mér og mér tókst að vigta og mæla 3 máltíðir á dag en þetta var stundum erfitt því það var allt fljótandi í óhollustu alla helgina En ég er algjör hetja Best að hætta núna áður en ég missi mig í grobbi.Þangað til næst, bæjó
Um bloggið
Kristborg Ingibergsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert duglegust
Brussan, 12.5.2008 kl. 22:22
Já þú ert hetja :) alveg sammála þér ;)
Ella Guðný, 12.5.2008 kl. 23:09
Hetja ertu svo sannarlega
Sykurmolinn, 12.5.2008 kl. 23:18
Við erum allar hetjur stelpur.... Við komumst í gegnum hvern daginn á fætur öðrum án þess að vera að troða okkur út af mat...... Hvað er það annað er smá Spiderman syndróm.... Súper herós
Helga Dóra, 12.5.2008 kl. 23:55
Gott að fá þig aftur í bæinn og ennþá í fráhaldi. Hver dagur sem við erum í fráhaldi er kraftaverk, þannig að við erum algjörar kraftaverkakonur
María, 13.5.2008 kl. 00:22
Æðilegt að sjá hvað þú stendur þig vel :)
Ég segi að fólk í fráhaldi séu hetjur þannig að við erum hetjur :)
Hafrún Kr., 13.5.2008 kl. 01:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.