4.1.2009 | 00:40
Gleðilegt nýtt ár.
Jæja þá er ég búin að vera í fráhaldi önnur jólin mín Búin að eiga yndisleg jól og áramót upp í sveit í sumarbústað. Við fórum sem sagt, ég, Friðrik og Íris, 23 des ( eftir skötuveislu hjá Lindu og Aðalsteini) upp í Brekkuskóg í bústað sem vinkona mín, systur hennar og mamma eiga. Þær voru svo yndislegar að lána okkur bústaðinn sinn, sem er náttúrulega bara hjartagæska
Vona að ég geti launað þeim á einhvern hátt. Við vorum þrjú yfir jólin, Eygló systir og fjölskylda voru í bústað rétt hjá og hittumst við auðvita um jólin. Esther og Bogga, Ari Þór og fjölskylda komu í heimsókn á sunnudeginum. Við borðuðum öll saman og Ari og co gistu um nóttina það var mjög gaman, kjaftað langt fram á nótt. Á mánudeginum komu svo Díana og Grétar með 4 útlendinga sem voru hjá þeim um jólin og var verið að fara með þau að Gullfoss og Geysir. Allt saman yndislegt fólk. Við gömlu hjónin eyddum svo áramótunum tvö saman í sveitinni, eða nei aldeilis ekki tvö því kisurnar okkar voru með okkur, þær Þöll og Kleó. Ég er svo þakklát fyrir fráhaldið mitt. Þakklát fyrir að vera ekki búin að vera gjörsamlega í þoku yfir hátíðarnar.
Maðurinn minn var að skoða myndir af mér sem voru teknar í sumarbústað um jólin 2006 og heyrði ég bara oj varstu virkilega orðin svona feit, það var einmitt eftir þau jól sem ég ákvað að nú yrði ég að gera eitthvað, burtséð frá því hvað ég var orðin mikil um mig þá leið mér skelfilega andlega
Síðan hefur leiðin legið upp á við. Ég er búin að fá svo mikið, betri líðan andlega og líkamlega.
Núna í augnablikinu eru kannski ekki mjög bjartir tímar hjá mér. Það er samt fjölskyldumál sem fer örugglega vel. Ég allavega hef ákveðið að leggja það í hendurnar á mínum æðri mætti. Það hefur alltaf reynst vel fyrir mig.
Óska öllum gleðilegs nýs árs, með þakklæti fyrir árið sem leið.
Knús og kærleikur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Bloggfærslur 4. janúar 2009
Um bloggið
Kristborg Ingibergsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar