29.1.2009 | 18:19
Að lifna við...........
Jæja þá held ég að maður sé að lifna við. Búin að fara tvisvar í ræktina í vikunni Búin að fara á tvo fundi. Búin að fara í mat til dóttur minnar á Selfossi, svo þetta er búin að vera flott vika. Er að fara í prjónaklúbb í kvöld. Ég held ( eða veit) að það sem vara að draga mig niður voru allar þessar neikvæðu fréttir. Og hvað gerir maður þá? HÆTTIR AÐ HORFA á fréttir. Ég þurfti reyndar að láta segja mér að fara í fréttapásu
Ég finn að ég er öll miklu skapbetri. Ég er orðin mjög spennt fyrir afmælisfundi gsa samtakanna sem er á laugardaginn í Vídalínskirkju frá kl 10-16.
Ég er sem sagt sátt við Guð og menn.
Kærleiksknús.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.1.2009 | 01:57
Líf og fjör............
Já það er sko búið að vera fjör hjá mér Á föstudagskvöld borðuðum við saman ég, Silla og Sigga, og að sjálfsögðu var bara veisla. Svo eftir matinn fór ég og hitti æskuvinkonur sem ég hef ekki hitt í hundrað ár eða um það bil. Það var mikið kjaftað og hlegið langt frameftir, við ætlum að endurtaka þetta fljótlega. Nú svo í kvöld var matarklúbburinn að hittast og það er alltaf mikið fjör í kringum það
Sem sagt frábær helgi og sunnudagurinn eftir.
Þangað til næst. Kærleikskveðjur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.1.2009 | 18:02
Mótmælin.....
Ég er rosa stolt af þeim íslendingum sem eru að mótmæla niður í bæ En ég er svo mikil gunga að ég þori ekki í svona læti,, nema kannski á laugardögum, en alls ekki á kvöldin. Ég vil kosningar, ríkisstjórnina burt. Ég treysti engum lengur, þetta eru allt glæpamenn í mínum huga.
Maður skilur ekkert í þessu, af hverju er engin búin að segja af sér? af hverju þarf engin að axla ábyrgð. Þessir ráðamenn og auðkýfingar eru búnir að setja þjóðina á hausinn og svo sitja þeir bara eins og fínir menn sem fastast. HVAÐ ER AÐ: Þetta finnst mér vera algjört siðleysi. Og hana nú.......
Búin að losa um smá gremju hérna Farin að elda mat.
Bæjó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.1.2009 | 01:25
Skemmtilegur dagur.
Já þetta er búin að vera fínn dagur. Fékk mágkonu mína, son hennar og tengdadóttir, tengdamömmu og Írisi í mat. Mágkona mín býr á Breiðdalsvík og hitti ég hana því ekki oft, hún er mjög skemmtileg kona og þykir mér mjög vænt um hana. Tengdamamma var mjög ánægð eftir daginn. Hún er nýorðin ekkja og er oft ein, það eru mikil viðbrigði.
Ég ætla að reyna að vera dugleg að sækja hana og gera eitthvað með henni. Ég keyrði þær ekki heim fyrr en kl 24. Fyrst fórum við í Hagkaup, um að gera að nýta sér næturopnunina. Og ég er ekki að djóka með það að það var nóg að gera.
En nú verð ég að fara að sofa. Góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.1.2009 | 00:21
Frekar tóm,,,,,,,,,,,,
Er búin að vera frekar tóm undanfarið Veit ekki hvort það er vegna þess að ég hef verið frekar slöpp. Var að spá í hvort ég væri komin með síþreytu, finnst ég eitthvað svo orkulaus
Þarf svo að fara að drífa mig í ræktina, en ég hef mig bara ekki í það. Veit alveg að það myndi gera mikið fyrir mig. Kannski hunskast ég úr því að ég er búin að skrifa það hér
Svo er svefninn alveg út úr kú hjá mér. Eins og t.d núna ætti ég að vera farin að sofa en ekki að hanga í tölvunni.
Finnst að ef ég skrepp á fund eða eitthvað (geri nú samt ekkert annað) að þá geti ég réttlætt það að hanga svo bara inni í einn eða tvo daga En nóg af þessu væli.
Er annars búin að eiga mörg góð símtöl í kvöld.
Kærleiksknús
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.1.2009 | 00:46
Hæ hæ.
Vá hvað það er skrítið að vera að halda upp á 25 ára afmæli barnsins síns. Mér finnst ég ekki deginum eldri en 25 Og samt er hún ekki elsta barnið mitt, eldri dóttirin er 26 og verður 27 í sumar. Svo er litla örverpið (sem er tæpir 2 metrar) að verða 23.
En það er gott að geta verið ungur í anda Dagurinn var sem sagt mjög góður í góðra vina hópi.
Á morgun ætlum við nokkra vinkonur að hittast og borða saman hádegismat, mig hlakkar mjög til.
Þess vegna er best að fara að koma sér í bælið núna.
Þangað til næst, bæjó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.1.2009 | 23:36
Tölvusjúk??????eða,,,,,,,,
Ótrúlegt hvað það er óþægilegt að sofa yfir sig Lenti í því í morgun, vaknaði við símann kl 8. Sem betur fer eru foreldrarnir eitthvað seinir í gang eftir hátíðirnar og fyrsta barn kom ekki fyrr en kl 8.30
Þetta hefst upp úr því að hanga svona lengi í tölvunni á Facebook á kvöldin Varð nú samt að kíkja í hana núna.
Við Palli sonur minn fórum í kvöld og gengum frá jólaskrautinu hjá mömmu, fórum svo og kíktum á litla ömmustrákinn hennar Díönu vinkonu. Jesús minn hvað hann er yndislegur. Flottur 5 daga gamall strákur. Ég er sko skáamman
Jæja best að kíkja aðeins á facebook
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2009 | 00:11
Tveggja ára :o)
Jæja þá er maður búin að vera í fráhaldi í tvö ár í dag Ég er mjög stolt af mér. Eins og ég hef oft talað um hérna þá er þetta það einfaldasta sem ég hef gert. Lífið hefur tekið algjörum stakkaskiptum. Ég er hamingusöm, glöð og frjáls
Auðvitað heldur lífið áfram að gerast, en ég þarf ekki að borða yfir tilfinningar. Ég tekst á við lífið með mínum æðri mætti eins og ég skil hann.
Kærleiksknús til allra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.1.2009 | 00:40
Gleðilegt nýtt ár.
Jæja þá er ég búin að vera í fráhaldi önnur jólin mín Búin að eiga yndisleg jól og áramót upp í sveit í sumarbústað. Við fórum sem sagt, ég, Friðrik og Íris, 23 des ( eftir skötuveislu hjá Lindu og Aðalsteini) upp í Brekkuskóg í bústað sem vinkona mín, systur hennar og mamma eiga. Þær voru svo yndislegar að lána okkur bústaðinn sinn, sem er náttúrulega bara hjartagæska
Vona að ég geti launað þeim á einhvern hátt. Við vorum þrjú yfir jólin, Eygló systir og fjölskylda voru í bústað rétt hjá og hittumst við auðvita um jólin. Esther og Bogga, Ari Þór og fjölskylda komu í heimsókn á sunnudeginum. Við borðuðum öll saman og Ari og co gistu um nóttina það var mjög gaman, kjaftað langt fram á nótt. Á mánudeginum komu svo Díana og Grétar með 4 útlendinga sem voru hjá þeim um jólin og var verið að fara með þau að Gullfoss og Geysir. Allt saman yndislegt fólk. Við gömlu hjónin eyddum svo áramótunum tvö saman í sveitinni, eða nei aldeilis ekki tvö því kisurnar okkar voru með okkur, þær Þöll og Kleó. Ég er svo þakklát fyrir fráhaldið mitt. Þakklát fyrir að vera ekki búin að vera gjörsamlega í þoku yfir hátíðarnar.
Maðurinn minn var að skoða myndir af mér sem voru teknar í sumarbústað um jólin 2006 og heyrði ég bara oj varstu virkilega orðin svona feit, það var einmitt eftir þau jól sem ég ákvað að nú yrði ég að gera eitthvað, burtséð frá því hvað ég var orðin mikil um mig þá leið mér skelfilega andlega
Síðan hefur leiðin legið upp á við. Ég er búin að fá svo mikið, betri líðan andlega og líkamlega.
Núna í augnablikinu eru kannski ekki mjög bjartir tímar hjá mér. Það er samt fjölskyldumál sem fer örugglega vel. Ég allavega hef ákveðið að leggja það í hendurnar á mínum æðri mætti. Það hefur alltaf reynst vel fyrir mig.
Óska öllum gleðilegs nýs árs, með þakklæti fyrir árið sem leið.
Knús og kærleikur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Kristborg Ingibergsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar